EKKERT WORLD CLASS Á SJÁLAND

EKKERT WORLD CLASS Á SJÁLAND

Það mun þrengja að allri umferð þar sem eru m.a. 2 barnaskólar !

Points

.

Mjög ósammála. Vantar World Class í Garðabæ og langt að labba í Dalshraun eða Smáralind. World Class gætu notfært sér þetta hús vel og gert það flott. Þetta eflir heilsurækt og ég held að mjög margir myndu nýta sér þetta. Einnig yrði pottur sem allir gætu farið í og veitingastaður. Er ekki sammála að þetta muni þrengja að umferð, enda keyriru beint niður á hringtorgið og beygir inn nánast strax. Ég bý í Sjálandinu og sé ekkert nema gott við þetta.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar,  www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Innilega sammála þessu. Getur ekki talist nauðsynlegt. Þjónusta sem ansi margir hafa ekki áhuga á vegna ansi ríflegrar verðlagningar. Kallar á meiri umferð, sem þó er ærinn fyrir. Auk þess að spilla fallegri strandlengju.

Sammála þessu, þetta svæði er deiluskipulagt fyrir veitingastað og það vantar svo sannarlega veitingastað í Garðabæ. Það vantar bara öflugan rekstraraðila sem kann að reka flottan stað með góðum mat og þjónustu. Eins mætti poppa núverandi stað upp úti og inni, gera allt hlýlegra inni, planta trjágróðri úti og gera meira skjól.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information