Battavöllur fyrir Bæjargil og Hæðahverfi

Battavöllur fyrir Bæjargil og Hæðahverfi

Lítið hefur verið gert fyrir Bæjargil og Hæðahverfi á undanförnum árum. Skora á Garðabæ að setja upp battavöll á staðnum þar sem fótboltavöllurinn sem er fyrir neðan Hæðarból er núna. Fótboltavöllurinn sem er þar núna er nánast ónothæfur sökum ójafns undirlags. Einnig er varla hægt að stíga þar niður fæti fyrir gæsaskít. Stuðlum að heilbrigði fyrir bæði börn og fullorðna og komum upp battavelli fyrir íbúa þessara hverfa. Veit að það myndi gera mikið fyrir börnin að fá þetta í gegn.

Points

Kæri hugmyndasmiður. Þín hugmynd hefur verið valin áfram í kosningu Betri Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar,  www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Styð þessa hugmynd heilshugar. Það vantar afþreyingu fyrir börn í Bæjargilinu og Hæðarhverfinu sem eru vaxin uppúr hefðbundnum leikvöllum. Grasvöllurinn sem er þarna fyrir er lítið sem ekkert notaður allt árið í kring vegna lélegrar aðstöðu. Það væri frábært að fá almennilegann battóvöll líkt og finnst í flestum öðrum hverfum bæjarins.

Ég vona innilega að þessi tillaga nái loksins í gegn, löngu tímabært og verður mikið notað

Mjög sammála þessari tillögu, mun nýtast vel

Frábær hugmynd!

Þetta væri svo frábært fyrir krakkana í Bæjargili og Hæðunum. Mjög þarft að fá afþreyingu fyrir eldri krakkana.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information