Hundagerði

Hundagerði

Hundagerði á Álftanesi væri frábær til að leyfa þessum yndislegu ferfættlingum að leika saman í öruggu umhverfi án þess að vera í taum, þar sem bæði eigendur og hundar geta átt samverustund. Það eru ansi margir hundaeigendur hér á Álftanesinu og hundagerði, þar sem hundar og menn geta komið saman og átt spjall yrði mjög góð viðbót við Álftanes sem útivistarsamfélag. T.d gæti verið hundagerði við Bjarnastaði eða við endann á Norðurnesveg, ath. myndirnar koma ekki rétt inná vefinn!

Points

Þessi hugmynd er sambærileg annarri hugmynd sem fer áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Frábært hugmynd. Álftanes er með mikið af hundaeigendum. Myndi þetta auka öryggi og bæta samfélagið.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information