Hugmyndir um umferðargöng undir Arnarnesveg inná Akrabraut

Hugmyndir um umferðargöng undir Arnarnesveg inná Akrabraut

Sem íbúi í Akrahverfi tel ég ekki rétt að hugmyndir um akandi umferð í gegnum undirgöng við Hofakur og inná Akurbraut vegna fyrirhugaðarar byggðar sem á að rísa norðan megin Arnarnesvegar verði að veruleika. Hverfið er afmarkað af hljóðmönum bæði við Hafnarfjarðarveg og Arnarnesveg til að draga úr hávaða vegna umferðar. Ég vil hvetja bæjaryfirvöld til að finna aðrar lausnir með hag íbúa að leiðarljósi sem rýra ekki lífsgæði og kaupverð fasteigna í Akrahverfi

Points

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar,  www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information