Nýtt skipulag við Iðnbúð/Smiðsbúð

Nýtt skipulag við Iðnbúð/Smiðsbúð

Breyta skipulagi við Iðnbúð/Smiðsbúð þannig að hægt verði að sækja þar fjölbreytta þjónustu eins og td matvöruverslun, bakari, kaffihús, sælkeraverslun, kjöt og fiskverslun, ísbúð o.s.frv. Hafa göngugötu og græn svæði og gera lítinn miðbæ - sem vantar svo sárlega í bæinn okkar. (Garðatorg er því miður ekki að ná að fanga það að vera miðbærinn okkar) Þetta svæði býður upp á mikla möguleika og sorglegt að sjá yfirgefin húsnæði og iðnaðarsvæði á þessu vel staðsetta svæði.

Points

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar,  www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information