Malbikaðan göngustíg við Norðurnesveg, Álftanesi

Malbikaðan göngustíg við Norðurnesveg, Álftanesi

Það vantar malbikaðan göngustíg á stuttan spöl við Norðurnesveg á Álftanesi, frá strætóskýli við Eyvindarstaðaveg og langleiðina að Bessastaðavegi. Núverandi staða þýðir að gangandi og hjólandi þurfa að þvera Norðurnesveginn tvisvar vilji þau labba Álftaneshringinn, og fara þennan stutta spöl á vondum malarstíg hinum megin við veginn. Þetta er óöruggt og mjög óhentugt, sérstaklega fyrir fólk með barnavagna. Malbikaðan göngustíg allan Álftaneshringinn, takk!

Points

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar,  www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information