Hugmynd að fjarlægja hornhlutann af girðingunni hjá hringtorgi og gangbraut við Kópavogsbraut hjá Sunnuhlíð.
Þetta er algjört blindrahorn; bílar koma hratt niður brekkuna og fara hratt fyrir hornið til að beygja til hægri inn á Kópavogsbraut. Gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk sjá ekki strax bílana þegar þeir eru að beygja til hægri, og bílarnir sjá ekki fólkið við gangbrautina nema akkúrat við þetta horn. Þetta er hættulegt horn og væri sniðugt að fjarlægja hluta af girðingunni við þessa gangbraut eða setja plexigler til að gera bílana sýnilegri.
Þetta horn er stórhættulegt, sérstaklega þeim megin þar sem bílar beygja inn á Kópavogsbrautina, þar sem hraðinn er mikill og varla hægt á fyrir beygjuna.
Ég legg til að settir verði gluggar á girðinguna. Þá er girðingin áfram sú vörn sem henni er ætlað en bílstjórar sjá hvort einhver er á ferð á bak við hana. Ég t.d. stoppa næstum alveg á þessu horni þegar ég fer þessa leið akandi inn á Kársnesið af ótta við þá sem koma oft á hvínandi ferð niður göngustíginn og beint út á gangbrautina. Það væri mikill munur á sjá þá fyrirfram í gegn um glugga á girðinunni
Set þetta í "rök með" en strangt til tekið var auglýst nýtt skipulag um "Göngu- og hjólastígar um Kópavogsháls" https://skipulagsgatt.is/issues/2024/583 í sumar (frestur til athugasemda rann út 23. sep. sl.) og allt þetta svæði milli Þinghóls og Hamraborgar verður endurnýjað.
Hef því miður komið að slysi þarna, þar sem grindverkið hafði án efa birgt ökumanni sín á þann sem kom af hjólastígnum
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation