Við Menningarhúsin væri gaman að setja upp vönduð og falleg leiktæki sem ríma við hin glæsilegu menningarhús sem eru þar allt um kring. Núna er svæðið óskipulagt og væri enn meiri lyftistöng fyrir það að setja þar upp vönduð leiktæki fyrir alla aldurshópa. Mikið líf er á svæðinu og hægt að sjá fyrir sér að bærinn geti þjónustað þennan hóp enn frekar með nýjum leiktækjum. Túnið við menningarhúsin er klárlega einn fallegasti samverustaðurinn í Kópavogi og á hann skilið að fá upplyftingu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation