
Ég legg til að tjaldsvæði Hafnarfjarðar verði flutt af Víðistaðatúni að Hvaleyrarvatni. Víðistaðatún er opið fjölskyldu- og útivistarsvæði í hjarta bæjarins, umkringt skólum (Víðistaðaskóla og Hjallastefnuskólunum), og hentar illa undir tjaldsvæði. Við Hvaleyrarvatn er kyrrlátt náttúrusvæði í fárra mínútna fjarlægð sem hentar tjaldgestum mun betur.
1. Skólarnir við Víðistaðatún (Víðistaðaskóli og Hjalli) nýta svæðið vel; þeir þurfa að deila því með tjaldgestum og bílastæðum húsbíla yfir sumarið. 2. Verðmætt opið grænt svæði nærri miðbæ nýtist bæjarbúum betur allan ársins hring en sem tjaldsvæði hluta úr sumri. 3. Tjaldsvæði í þéttbýli veldur umferð og ónæði fyrir íbúa. 4. Hvaleyrarvatn býður gestum náttúru, kyrrð og útivist. 5. Fordæmi: Akureyri lokaði tjaldsvæði innan bæjarmarka og allir tjalda við Hamra nærri Kjarnaskóg, fer betur á því.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation